Stjórnskápar
Stjórnskápar
Sérpöntun. Sendið fyrirspurn á rst@rst.is
Hönnun, smíði, forritun og framleiðsluprófanir á stjórnbúnaði fyrir veitukerfi og iðnað. Uppsetning, gangsetning og prófanir á verkstað auk þjálfunar rekstraraðila í notkun á búnaðinum.
RST Net býður, ásamt traustum erlendum samstarfsaðilum og birgjum, upp á heildarlausnir sem byggja á reynslu og víðtækri þekkingu á stjórn- og varnarbúnaði.
Tæknimenn RST Nets hafa langa reynslu og þekkingu á forritun RTU útstöðva og PLC véla svo sem PCM600 útstöðva frá ABB og PLC vélum frá iðntölvuframleiðenum Allen Bradley, Rockwell, Siemens o.fl. Fyrir stjórn- og varnarbúnað í stærri framkvæmdaverkum býður RST Net upp á heildarlausnir, þar sem búnaður og stjórnskápar sem hýsa búnaðinn er í samræmi við kröfulýsingu verkkaupa og alþjóðlega staðla.
Að lokinni samsetningu og innbyrðis tengingum á fullbúnum stjórnskápum eru framleiðsluprófanir (FAT) framkvæmdar í prófunaraðstöðu fyrirtækisins áður en skáparnir eru fluttir á verkstað til uppsetningar.
Share
