Persónuverndarstefna

Persónuverndarstefna RST Nets

1. Almennt

RST Net ehf. leggur ríka áherslu á öryggi, gagnsæi og trúnað persónuupplýsinga. Þessi persónuverndarstefna útskýrir hvernig við söfnum, notum, geymum og verjum persónuupplýsingar í tengslum við starfsemi okkar, í samræmi við gildandi persónuverndarlög og reglur (GDPR og íslensk lög).

2. Ábyrgðaraðili

RST Net ehf. (kt. 530198-2359)
Netfang:  rst@rst.is
Sími: 557-1050

3. Hvaða gögnum söfnum við og hvernig

Við vinnum með persónuupplýsingar sem okkur berast í tengslum við:

  • Samband við viðskiptavini (nafn, netfang, símanúmer, kennitala)
  • Upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustu (t.d. fyrirtækjaheiti, kennitala, greiðslu- og reikningsupplýsingar)
  • Samskiptasaga (tölvupóstur, fyrirspurnir, þjónustubeiðnir)
  • Vefnotkunargögn (vafrakökur, greiningartól ef við notum þau)
  • Aðrar upplýsingar sem einstaklingar veita sjálfir til t.d. markaðssetningar, þjónustutilboða eða samninga.

4. Tilgangur vinnslu

Persónuupplýsingar eru unnar til:

  • Að veita og bæta þjónustu okkar
  • Að halda utan um viðskiptasambönd og samskipti
  • Uppfylla lagaskyldur (t.d. bókhald, skattar, reglugerðir)
  • Að tryggja öryggi í rekstri okkar og kerfum
  • Markaðssetningar og samskipta
  • Að svara beiðnum einstaklinga, kvörtunum og stuðla að gagnsæi

5. Lagagrundvöllur og gagnaöryggi

Vinnsla persónuupplýsinga byggir á einum eða fleiri af eftirfarandi:

  • Samning við viðkomandi aðila eða aðgerðum fyrir samningsgerð
  • Lagalegri skyldu, t.d. um bókhaldsskyldu
  • Lögmætum hagsmunum RST Nets til að bæta þjónustu og tryggja rekstur
  • Samþykki einstaklinga (þegar það á við, t.d. markaðssetning)

6. Miðlun og deiling gagna

Við deilum ekki persónuupplýsingum nema:

  • með samþykktum aðilum (t.d. þjónustuaðilum bókhalds) sem vinna samkvæmt samningi um að hlíta persónuvernd og öryggisreglum
  • ef um lagaskyldu er að ræða, eða það er nauðsynlegt til að vernda réttindi okkar eða annarra

7. Varðveisla gagna

Gögn eru aðeins geymd svo lengi sem nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar og í samræmi við lög.

8. Réttindi einstaklinga

Einstaklingar eiga rétt á:

  • Aðgangi að eigin persónuupplýsingum
  • Leiðréttingu ef gögn eru röng eða ófullnægjandi
  • Eyðingu gagna þegar ekki er lögmæt ástæða til að halda þeim
  • Takmörkun vinnslu undir ákveðnum kringumstæðum
  • Að andmæla vinnslu ef vinnslan byggist á lögmætum hagsmunum
  • Að fá gögn send eða flutt þar sem það á við. Til að nýta þessi réttindi má hafa samband við ábyrgðaraðila (sjá grein 2).

9. Öryggi gagna

RST Net beitir viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum til að tryggja vernd persónuupplýsinga.

10. Breytingar á stefnu

RST Net áskilur sér rétt til að breyta þessari stefnu þegar lög, reglugerðir eða starfsaðstæður breytast. Við munum tilkynna um breytingar á heimasíðu fyrirtækisins og ef við á, annan viðeigandi hátt.

11. Kvörtunar- og aðgengisleiðir

Ef þú telur að vinnsla persónuupplýsinganna þinna brjóti gegn lögum eða þessari stefnu getur þú:

  • Haft samband við RST Net (netfang og símanúmer í grein 2)
  • Leitað til Persónuverndar (www.personuvernd.is) með kvörtun og beðið um aðstoð