Terms of service

Almennir viðskiptaskilmálar RST Nets ehf

Síðast uppfært: 01.12.2025

Tilboð:

Tilboðsverð seljanda er almennt gefið upp í íslenskum krónum, miðað við dagsgengi og þágildandi tolla og aðflutningsgjöld og tekur mið af breytingum á þessum þáttum sem kunna verða fram staðfestri pöntun kaupanda. Almennur gildistími tilboða er 30 dagar. Tekið er fram í tilboði seljanda hver hlutur virðisaukaskatts í tilboðsverði og hver áætlaður afhendingartími vörunnar. Tilboðsverð miðast almennt við greiðslu 30% staðfestingargjalds við pöntun og lokagreiðslu við afhendingu vöru, nema um annað hafi verið samið. Viðskiptavinir í reikningsviðskiptum hjá seljanda hafa 14 daga greiðlufrest frá útgáfudegi lokareiknings nema um annað samið.

Pöntun:

Pöntun er bindandi þegar kaupandi hefur staðfest tilboð skriflega, með tölvupósti eða í gegnum heimasíðu seljanda. Seljandi sendir kaupanda pöntunarstaðfestingu og skal kaupandi þegar í stað ganga úr skugga um hún í samræmi við fyrirhugaða pöntun.

Kaupandi getur óskað eftir við pöntun  afhendingu vöru verði hraðað sem getur haft aukakostnað í för með sér.  Í slíkum tilvikum tekur söluverð vöru mið af þeim aukakostnaði.  

Seljandi áskilur sér rétt til aflýsa pöntun ef varan er uppseld hjá framleiðanda eða ekki lengur í framleiðslu, en skal þá jafnframt gefa kaupanda nýtt tilboð í vöru sem gæti komið í staðinn.  

Sending:

Vara er send á ábyrgð og kostnað kaupanda, nema um annað hafi verið samið. Sé pöntuð vara ekki sótt innan sjö daga frá því að seljandi tilkynnir kaupanda að hún sé tilbúin til afgreiðslu í vörugeymslu seljanda, áskilur seljandi sér rétt til að leggja geymslugjald á vöruna eða senda vöruna til kaupanda á hans kostnað, nema að um annað hafi verið samið.

Greiðsluskilmálar:

Gjalddagi reiknings er tilgreindur á sölureikningi og er eindagi reiknings sami dagur og gjalddagi.  Hæstu lögleyfðu dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu reikningar ógreiddir á eindaga. Þegar samið hefur verið um að vara skuli afhent í áföngum og greiðsla hefur ekki borist vegna fyrri afhendinga stöðvast frekari afhendingar af hálfu seljanda þar til full greiðsla hefur verið innt af hendi. Sama gildir ef samið hefur verið um innborganir og kaupandi stendur ekki við samkomulag þar að lútandi. Seljandi ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem kaupandi kann að verða fyrir vegna tafa á afhendingu af þessum sökum.

Söluveð og eignarréttur:

Varan er eign seljanda þar til hún hefur verið að fullu greidd. Seljandi heldur söluveði sbr. III. kafla, undirkafla G, laga nr. 75/1997 um samningsveð, í seldri vöru eins og hún er skilgreind áreikningi þar til kaupverð vörunnar samkvæmt sölureikningi hefur verið að fullu greitt. Öll verð og vöruupplýsingar sem birt eru í vefverslun eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur RST Net sér allan rétt til leiðréttingar á slíkum villum.

Tafir á afhendingu:

Seljandi ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem verða kann vegna seinkunar á afhendingu eða rangrar afhendingar eða ef vara kemur gölluð frá erlendum birgjum. Seljandi ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem má rekja til aðstæðna (force majeure) sem seljandi getur ekki ráðið við þ.á.m. verkföll, verkbönn, eldsvoða, farsóttir, stríðsástand, skipsskaða eða aðrar sambærilegar aðstæður.

Vöruskil:

Seljandi tekur ekki við vöru sem kaupandi vill skila nema um lagervöru sé að ræða sem enn er í sölu og að skilin fari fram innan 14 daga frá afhendingu vörunnar. Skilyrði fyrir því að seljandi taki á móti vörunni er að hún sé í sama ásigkomulagi og við afhendingu. Kaupandi ber allan kostnað af endursendingu vörunnar.

Sérpantaðri vöru er almennt ekki hægt að skila.

Ábyrgð:

Gildistími ábyrgðar er í eitt ár frá afhendingu vöru. Reikningur gildir sem ábyrgðarskírteini. Ábyrgð er ekki staðfest nema framangreindum reikningi sé framvísað.

Komi í ljós framleiðslu- eða efnisgalli á ábyrgðartímabilinu takmarkast ábyrgð seljanda við kostnað við varahluti og viðgerð á hinni gölluðu vöru. Kaupandi skal kosta og sjá um að koma vöru á verkstæði seljanda og/eða framleiðanda til viðgerðar og skal hann fylgja fyrirmælum seljanda um hvernig varan skuli flutt og hvernig búið skuli um hana til flutnings. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna galla. Ef viðgerð fer fram á vörunni á meðan hún er enn í ábyrgð, framlengist ábyrgðin ekki á vörunni eða þeim hlutum sem skipt er út.

Seljandi ber ekki ábyrgð á afleiddu tjóni vegna galla eða bilunar á seldri vöru.

Ef seld eru notuð tæki fylgir þeim ekki ábyrgð nema um slíkt sé sérstaklega samið skriflega.

Seljandi undanþiggur sig að öðru leyti ábyrgð á seldum vörum að því marki sem lög heimila.

Takmörkun og brottfall ábyrgðar:

Seljandi ber enga ábyrgð á óbeinu tjóni sem kann að hljótast af notkun á vörunni.

Ábyrgðin fellur úr gildi ef ekki hefur verið farið að fyrirmælum framleiðanda og/eða seljanda varðandi öryggismál, uppsetningu, notkun og viðhald. Ábyrgð fellur jafnframt niður ef raðnúmer hefur verið fjarlægt af vörunni, eða átt við vöruna á annan hátt af aðilum óviðkomandi seljanda án skriflegs samþykkis hans. Eigi bilun, skemmdir eða eftir atvikum eyðilegging á vöru rætur að rekja til rangrar eða slæmrar meðferðar kaupanda ber kaupandi ábyrgð á greiðslu viðgerðarkostnaðar.

Ábyrgð gildir ekki vegna eðlilegs slits vegna notkunar vörunnar, eða vegna tæringar eða skemmda af völdum veðurs eða annarra utanaðkomandi áhrifa.

Skaðsemisábyrgð:

Verði ágreiningur um hvort varan hafi valdið tjóni fer um ábyrgð seljanda lögum nr. 25/1991 um skaðsemisábyrgð. Seljandi undanþiggur sig ábyrgð af slíku tjóni að því marki sem þau lög heimila.

Neytendakaup:

Sé um að ræða neytendakaup í skilningi laga nr. 48/2003 ganga ákvæði þeirra laga framar viðskiptaskilmálum þessum stangist þau á.